Rock on....

21.01.2009 14:48:45 / arny

veit fólk þetta?


Hefur einhver heyrt um það þarna á Íslandi að millifærslur til útlanda kosti meira en venjulega? Ég veit að það er vesen að millifæra, en hægt er að fá undanþágu ef maður er námsmaður. Hinsvegar hafði ég ekki heyrt hvað það kostaði eða að það kostaði meira en venjulega, þ.e. eins og fyrir hrun bankanna.

Ég komst að því í dag að millifærsla kostar 6000 íslenskar krónur.

Ég bara á ekki til eitt aukatekið orð!
við erum að tala um að námsmenn ÞURFA að millifæra peninga, og þetta fólk er að skrimta þessa dagana og þeir eru látnir borga SEX ÞÚSUND KRÓNUR fyrir að millifæra!!!!

Þetta þýðir það að ég er búin að borga 18.000 ísl krónur í millifærslugjöld síðustu þrjá mánuði!


Margrét B skrifaði
Vó, þetta vissi ég ekki! Ég gæti svoo keypt mér skó fyrir þessa millifærslu!!!! Eða bara skumpap og lím!!! Hvað er málið, maður má bara aldrei eiga peningana sína í friði!!!!!!!!!!!!
Árný skrifaði
NÁKVÆMLEGAAAAA.... frekar mikið ömurlegt finnst mér!
Birna skrifaði
Hæ já djöfull hefur þetta hækkað þegar ég var að vinna í bankanum kostaði þetta einhvern rúman 1000 kall. Þannig að þeir eru aldeilis búnir að hækka þetta. Þetta er allt orðið svona peningarnir teknir af okkur einhverstaðar. Kv Birna
Árný skrifaði
já, ég myndi allavega ráðleggja fólki að ath þetta hjá sínum banka áður en það millifærir milli landa.

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Klukkan