jæja, ætli maður eigi einhverja lesendur eftir, eftir allt bloggleysið!! ætli maður eigi einhverja lesendur yfir höfuð, hehe..!!
hmm... síðan síðast.... heill mánuður... hvað er búið að gerast hjá mér...
Var í brjáluðu stressi í desember, náði samt að klára og skila ágætlega af mér, finnst ég hafa gengið vel og vonast eftir hækkandi einkunn, en þori samt ekki að vona neitt. Fæ einkunn í lok janúar.
jólin voru, já þau voru. Ég og kæró vorum tvö ein, rosa næs. gáfum hvort öðru guitar hero í jólagjöf, sátum svo og spiluðum og átum og nottla drukkum. bestu jól ever!!!
ég átti ammli á mánudag. Fékk morgunmat í rúmið, first time ever for me! liked it a lot!! Fékk æðislega afmælisgjöf, hlýjan, smart, þunnan, síðan og ofsalega fallegan ullarjakka

Fór út að borða um kvöldið á Jensens Böffhás, slurf slurf... með Sindra, hans tengdó, Dilju og Nóvember Bamba, Svenna og Kiru og svo nottla Aniku minni og Óla mínum. Yndislegur dagur í alla staði.
skilaði ritgerð á afmælisdaginn og er því komin í frí fram í lok janúar, kann ekki alveg að vera í fríi. voða skrítið, langar að gera fullt, nenni engu... æjjj samt voða gott að geta setið allan daginn og gert ekki neitt og haft leyfi til þess! nammi namm segi ég bara!
jæja ætla að drulla mér á kaffihús þar sem ég get reykt ógeðslega mikið og drukkið trilljón kaffi!!!